Kyrrðaryoga og Hljóðheilun
Bókað hérna neðar á síðunni
Yoga Nidra – Djúpslökun og hljóðheilun
Fjöldi: 3-10
Tími: 90 mín.
Tími: 90 mín.
Verð 6.500kr.
Rýmið er hreinsað með ilmi Palo Santo, hinum helga viði frá Suður Ameríku og Salvíu jurtinni, til að kyrra hugann fyrir hugleiðslu.
Lagst er undir teppi á mjúkri dýnu og hugleitt við léttan slátt hand trommunnar, sem jarðtengir okkur og hreinsar.
Setjum ásetning, markmið fyrir stundina.
Leidd djúpslökun Yoga Nidra fer fram undir stjórn viðurkennds leiðbeinanda. Djúpslökunin getur styrkt taugakerfið, bætt svefn og einbeitingu og stutt við hvíld og endurheimt orku.
Spilað er á vönduð handsmíðuð hljóðfæri og geta tónar þeirra haft heilandi hljóðáhrif og losað um streitu og spennu í líkamanum og styrkt miðtaugakerfið.