Hjartanæring og Kakóró
Bókað hérna neðar á síðunni

Góð slökun og endurræsing á taugakerfinu fyrir 3-10 í hóp.
Sest er niður á mjúka dýnuna. Gestirnir draga sér leiðsagnar spil fyrir ferðalagið. Eftir stutta hugvekju fá allir sinn bolla af ilmandi, hlýju og hreinu Cacao.
Hugleiðsla og markmiðasetning fyrir stundina
Rýmið er hreinsað með ilmi af Palo Santo, hinum helga viði frá Suður Ameríku og Salvíu jurtinni, til að kyrra og hreinsa hugann.
Lagst er undir teppi á mjúkri dýnu og hugleitt við léttan slátt hand trommunnar, sem jarðtengir okkur og hreinsar.
Leidd djúpslökun Yoga Nidra fer fram undir stjórn viðurkennds leiðbeinanda. Djúpslökunin getur styrkt taugakerfið, bætt svefn og einbeitingu og stutt við hvíld og endurheimt orku.
Spilað er á vönduð handsmíðuð hljóðfæri og geta tónar þeirra haft heilandi áhrif, losað um streitu og spennu í líkamanum og styrkt miðtaugakerfið.