Yoga Nidra djúpslökun
Yoga Nidra er djúpt slökunarástand þar sem slakað er á öllum vöðvum líkamans en vitundinni haldið vakandi. Gefur hvíld á við 4 tíma svefn.
Reglulega er
boðið uppá 4 vikna grunnámskeið í Yoga Nidra djúpslökun. nánari
upplýsingar og skráning hjá info@vokulandwellness.is
Rannsóknir sýna að ávinningur af djúpslökun er m.a. hvíld sem jafnast á við nokkra tíma svefn, meira jafnvægi og kyrrð í huga, betri einbeiting, hægari öndun, slökun á vöðvum, minni sársauki, minni streita, minni kvíði og jákvæð hugsun eflist.
Þátttakandi kemur sér vel fyrir á mjúkri dýnu undir hlýju teppi og lætur fara vel um sig. Gott er að hafa augnpúða.
Hver tími er um 1 klst.