Skilmálar, afbókanir og endurgreiðslur
Hér er það sem gildir þegar þú bókar viðburð, meðferð eða kaupir gjafakort á vefnum. Við reynum alltaf að finna lausn — hafðu bara samband.
Síðast uppfært 7. nóvember 2026
1.Hver við erum
Vefurinn vokulandwellness.is er rekinn af Unnsteini Tryggvasyni (Vökuland Wellness), kt. 241076-3269, VSK-nr. 136118, Vökulandi, 605 Akureyri.
Netfang: info@vokulandwellness.is · Sími: 663 0498
Skilmálarnir gilda um kaup á viðburðum, meðferðum, hópastundum og gjafakortum hér á vefnum. Gisting er bókuð í gegnum Airbnb og þá gilda skilmálar Airbnb.
2.Verð og greiðsla
Öll verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti.
Greitt er með greiðslukorti á öruggri greiðslusíðu Borga. Kortaupplýsingarnar fara beint til Borga — við sjáum þær aldrei og geymum þær ekki.
Staðfesting á kaupunum berst í tölvupósti um leið og greiðslan hefur gengið í gegn.
3.Viðburðir
Bókun er staðfest þegar greitt hefur verið. Á meðan þú gengur frá greiðslu eru plássin frátekin fyrir þig í 15 mínútur.
- Afbókun meira en 48 klst. fyrir viðburð: full endurgreiðsla.
- Afbókun innan 48 klst.: ekki endurgreitt, en þú mátt gefa plássið þitt öðrum. Láttu okkur bara vita hver kemur í staðinn.
Ef við þurfum að aflýsa eða færa viðburð færðu tölvupóst og getur valið um fulla endurgreiðslu eða pláss á öðrum degi.
4.Meðferðir og einkatímar
Tímabeiðni er ekki bindandi. Við svörum með tillögu að tíma og sendum greiðslutengil. Tíminn er staðfestur þegar greitt hefur verið. Ef ekki er greitt innan þess frests sem kemur fram í póstinum losnar tíminn aftur.
- Breyting eða afbókun meira en 48 klst. fyrir tímann: full endurgreiðsla eða nýr tími.
- Afbókun innan 48 klst. eða ef ekki er mætt: ekki endurgreitt, en þú mátt gefa tímann þinn öðrum. Láttu okkur bara vita hver kemur í staðinn.
Ef þú veikist skyndilega, hafðu samband — við finnum saman lausn.
5.Hópar og sérsniðnar bókanir
Hópastundir, retreat og aðrar sérsniðnar bókanir eru staðfestar þegar innborgun eða greiðsla samkvæmt greiðslutengli hefur borist.
- Afbókun meira en 14 dögum fyrir: full endurgreiðsla.
- Afbókun 7–14 dögum fyrir: helmingur endurgreiddur.
- Afbókun innan 7 daga: ekki endurgreitt.
Ef fækkar í hópnum, láttu okkur vita sem fyrst og við finnum lausn saman.
6.Veður og færð
Ef veður eða færð kemur í veg fyrir að viðburður, tími eða hópastund geti farið fram, til dæmis vegna lokaðra vega, bjóðum við nýja dagsetningu. Ef það gengur ekki endurgreiðum við að fullu — óháð afbókunarfrestum hér að ofan.
7.Gjafakort
Gjafakort er upphæð sem gildir upp í meðferðir og viðburði í Vökulandi. Það berst sem PDF í tölvupósti með kóða og gildistíma.
Einnig er hægt að fá prentað kort sent í pósti gegn sendingargjaldi sem kemur fram við kaup. Kortið er póstlagt innan 3 virkra daga og afhendingartími fer eftir Póstinum. Sendingargjaldið leggst ekki inn á kortið.
Kaup á gjafakorti eru endanleg: ekki er hægt að skila gjafakorti eftir kaup. Það sem ekki er notað stendur inni sem inneign þar til kortið rennur út. Gjafakort fást hvorki endurgreidd né skipt í peninga.
Kóðinn virkar eins og reiðufé: hver sem hefur hann getur notað hann. Ef pósturinn týnist getum við sent kortið aftur á netfang kaupandans.
8.Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga gildir 14 daga réttur til að falla frá samningi ekki um þjónustu tengda tómstundastarfi á tiltekinni dagsetningu, svo sem viðburði og staðfesta meðferðartíma. Í staðinn gilda afbókunarreglurnar hér að ofan.
9.Heilsa og ábyrgð
Meðferðir og stundir í Vökulandi eru til hvíldar og vellíðunar og koma ekki í stað læknismeðferðar.
Láttu okkur vita fyrir fram ef þú ert barnshafandi, með meiðsli eða annað sem skiptir máli fyrir meðferðina.
Notkun heita pottsins og saunu er á eigin ábyrgð. Farðu varlega ef þú ert með hjarta- eða blóðþrýstingsvanda og ekki eftir neyslu áfengis.
10.Endurgreiðslur
Endurgreiðslur fara á sama kort og greitt var með, yfirleitt innan 14 daga. Hvenær upphæðin birtist fer eftir kortaútgefanda.
11.Ágreiningur
Ef eitthvað fer úrskeiðis viljum við fyrst og fremst leysa það með þér beint. Ef það tekst ekki getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Um skilmálana gilda íslensk lög.
12.Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært skilmálana. Þeir skilmálar sem voru í gildi þegar þú keyptir gilda um þín kaup.